+ ENGLISH +
Dear Carolyn is a staged letter addressed to the composer Carolyn Chen, a friend of composer and performer Berglind María Tómasdóttir. The work weaves together reflections on memory and remembering, expressed through spoken word, sound, and images.
Dear Carolyn has a running time of just over half an hour.
Kambríum is a soundscape of flutes upon flutes. The work is improvised and spontaneous, continuously adapting to the space in which it is performed.
Berglind María Tómasdóttir is a flutist and composer based in Reykjavík, Iceland. Her work frequently explores identities, archetypes, and music as a social phenomenon across different media. She has collaborated with composers such as Björk, Anna Thorvaldsdóttir, Peter Ablinger, and Carolyn Chen, and has received commissions from Dark Music Days, the National Flute Association, Sequences Art Festival, Reykjavík Arts Festival, and Nordic Music Days, among others. Her album Ethereality received the 2022 Icelandic Music Awards Album of the Year. Berglind holds degrees in flute performance from the Reykjavík College of Music and the Royal Danish Academy of Music in Copenhagen, as well as a DMA from the University of California, San Diego. She is a professor at the Iceland University of the Arts.
Björg Brjánsdóttir, flutist, works with a wide range of ensembles and musical projects across genres. In recent years, she has focused on close collaborations with composers, premiering new works for flute as well as composing her own music.
+ ÍSLENSKA +
Ykkur er boðið á tvískiptan viðburð þar sem Berglind María Tómasdóttir og Björg Brjánsdóttir flytja verk sín.
Ókeypis inn.
Um verkin:
Berglind María Tómasdóttir:
Dear Carolyn er sviðsett bréf tileinkað tónskáldinu Carolyn Chen, vinkonu höfundar og flytjanda verksins, Berglindar Maríu Tómasdóttur. Í verkinu fléttast saman hugleiðingar um minni og minningar, settar fram í tali, hljóði og myndum.
Dear Carolyn er rúmur hálftími að lengd.
Björg Brjánsdóttir:
Kambríum er hljóðheimur — flautur á flautur ofan. Verkið er spunakennt og spontant og lagar sig að rýminu þar sem það er flutt.
Berglind María Tómasdóttir er flautuleikari og tónskáld sem vinnur þvert á miðla. Í verkum sínum kannar hún ímyndir, erkitýpur og tónlist sem félagslegt fyrirbæri. Sem flautuleikari hefur Berglind komið fram víðs vegar um heim og leikið inn á fjölda hljóðrita, meðal annars sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn Vladimir Ashkenazy. Plata hennar Ethereality var valin plata ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum 2022. Verk hennar hafa verið pöntuð og flutt meðal annars af Flautusamtökum Bandaríkjanna, Norrænum músíkdögum, Sequences, Myrkra músíkdögum og Listahátíð í Reykjavík. Berglind stundaði nám í flautuleik við Tónlistarskólann í Reykjavík og Konunglega danska konservatoríið í Kaupmannahöfn og lauk doktorsprófi frá Kaliforníuháskóla í San Diego árið 2013. Hún er prófessor við Listaháskóla Íslands.
Björg Brjánsdóttir, flautuleikari, vinnur með fjölbreyttum hópum þvert á tónlistarstefnur. Hún hefur á síðari árum einbeitt sér að samstarfi við tónskáld, frumflutningi nýrra verka fyrir þverflautu og samið eigin tónlist.